Beint í efni
News article — 13. ágúst 2025

500 thousand ISK grant to Píeta from Ísey skyr bar and customers

Today, Ísey skyr bar and their customers presented the Píeta organization with a grant of 500,000 ISK, the result of a fundraising campaign that took place in July.

In the picture you can see Ísey skyr bar handing over a check for the amount to the Bergur and Píeta organizations. From right, Jóna Friðriksdóttir, project manager for N1, Bergur Vilhjálmsson, hiker, then Magnús Hafliðason, managing director of N1

Söfnunin var hluti af átaki til að styðja við einstakt verkefni Bergs Vilhjálmssonar, slökkviliðs- og sjúkraflutningamanns, sem lagði í sumar af stað frá Goðafossi með stefnu á Reykjavík. Á leiðinni fór hann yfir hrjóstugar víðáttur Sprengisands með 100 kílóa kerru í eftirdragi. Markmiðið var tvíþætt; annars vegar að vekja athygli á mikilvægi andlegrar heilsu og hins vegar að safna fjármunum til styrktar Píeta samtökunum, sem veita ókeypis stuðning og ráðgjöf fólki í sjálfsvígshættu og aðstandendum þeirra.

Viðskiptavinir Íseyjar skyr bars tóku virkan þátt í átakinu með því að kaupa sérstaka próteinskál á afgreiðslustöðum Íseyjar um allt land. Hluti af andvirðinu rann óskiptur til Píeta og söfnuðust þannig 500.000 krónur.

Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1 sem rekur Ísey skyr bar á Íslandi, segir að þetta sé dæmi um hvað sameiginlegt átak geti skilað miklu.

Okkur þykir vænt um að geta stutt svona mikilvægt málefni og viljum þakka öllum viðskiptavinum okkar sem lögðu sitt af mörkum. Þetta sýnir að þegar fólk sameinast um góðan málstað er hægt að ná ótrúlegum árangri.

Magnús Hafliðason
Framkvæmdastjóri N1

Bergur þakkar einnig fyrir stuðninginn og segir að hver króna skipti máli í forvarnarstarfi Píeta

Það gleður mig að sjá hversu margir tóku þátt og sýndu í verki að þeim er ekki sama. Slíkur stuðningur gefur verkefninu enn meiri kraft.

Bergur