Beint í efni
News article — 9. nóvember 2025

A new N1 station is being built in Akranes

N1 has started fueling at a new service station on Elínarvegur in Akranes, right by Hausthúsatorg. There, drivers can now pump 95 octane gasoline, diesel, both colored and uncolored, as well as AdBlue and windshield washer fluid at the pump.

Þetta markar fyrsta áfangann í uppbyggingu nýrrar og glæsilegrar þjónustumiðstöðvar N1 á Akranesi. Öflugar hraðhleðslustöðvar verða settar upp á nýju ári, og hefur verið sérstaklega hugað að góðu aðgengi fyrir stærri bíla, trukka og vinnuvélar.

Framkvæmdir á svæðinu halda áfram næstu misserin, en í næsta áfanga verður reist þjónustuhús með verslun, dekkjaverkstæði, bílaþvottastöð og gasafgreiðslu. Stefnt er að fullri opnun stöðvarinnar veturinn 2026/2027.

Til að fagna þessum fyrsta áfanga verður sérstakt kynningarverð á seldum lítrum dagana 13.-16. nóvember og hvetur N1 íbúa og vegfarendur til að líta við og taka þátt í að prufukeyra nýju stöðina.