Beint í efni
News article — 7. júlí 2025

Choose your station and get the lowest price

It is well known how many people are willing to drive considerable distances to save a few cents per liter. The price of fuel has long been a hot topic in this country, but what if the question was no longer where it is cheapest to fill up the tank, but which station is best for me.

Magnús Hafliðason, fram­kvæmda­stjóri N1, seg­ir að í nýrri þjón­ustu N1 sem fengið hef­ur heitið „Stöðin mín“ fel­ist ein­föld hug­mynd: Fólk velji eina N1-stöð, þá sem henti því best og fái þar alltaf lægsta eldsneytis­verð sem N1 býður upp á hverju sinni. Þannig þurfi ekki leng­ur að elta verð eða bíða eft­ir til­boðum, kerfið sjái sjálft um að stilla þína stöð niður í lægsta verðið.

Úr flækju í ein­fald­leika

„Við fund­um fyr­ir ákveðnum pirr­ingi hjá viðskipta­vin­um. Fólk er orðið þreytt á að elt­ast við af­slætti og til­boðsdaga eða reyna að giska hvar sé ódýr­ast að fylla á. Jafn­vel sáum við fólk keyra fram hjá sinni stöð sem er mest í leiðinni til þess eins að spara kannski eina krón­ur á lítr­ann,“ seg­ir Magnús. „Í raun var fólk að eyða tíma og stund­um meira eldsneyti við það að elta hug­mynd­ina um að það sé að spara eldsneyti. Þarna sáum við því tæki­færi til að gera bet­ur.“ Frem­ur en að svara með enn einu viku­bundnu til­boði eða flóknu af­slátt­ar­kerfi ákvað N1 að ein­falda málið. „Við spurðum okk­ur: Hvað ef við leyf­um fólki ein­fald­lega að velja sína stöð og við tryggj­um að hún bjóði ávallt okk­ar lægsta verð? Það er sann­gjarnt, gagn­sætt og það virk­ar.“

Eng­in töfra­brögð, bara sjálf­virkt sann­girnis­kerfi

Með „Stöðin mín“ í appi N1 get­ur hver og einn valið þá eldsneyt­is­stöð N1 sem pass­ar viðkom­andi best, hvort sem það er við heim­ilið, vinn­una, bú­staðinn eða út af kaff­inu sem eng­an svík­ur. Frá því augna­bliki að stöð er val­in sér kerfið um að stilla verðið sjálf­krafa í takt við lægsta verð sem N1 býður á land­inu. Allt ger­ist þetta sjálf­krafa.

„Þetta er ekki til­vilj­ana­kennd verðlækk­un held­ur til­raun til nýrr­ar nálg­un­ar í þjón­ustu. Hún bygg­ir á trausti og við telj­um að framtíðin í smá­sölu snú­ist ein­mitt um það: ein­fald­leika, skýr­leika og heiðarleika,“

Magnús Hafliðason
Framkvæmdarstjóri N1

Fríðind­in fylgja þeim sem velja

Stöðin mín er hluti af N1-app­inu, sem hef­ur þró­ast í öfl­ug­an miðpunkt þjón­ustu fyr­ir ein­stak­linga. Með því að nota appið fær fólk ekki bara lægra verð held­ur einnig punkta í vild­ar­kerfi N1: Tvo punkta fyr­ir hvern keypt­an lítra af eldsneyti, þriggja pró­senta punkta­söfn­un af raf­orku­reikn­ingi heim­il­is­ins ef fólk er einnig með raf­magn hjá N1 og svo nýt­ast punkt­arn­ir sem greiðsla fyr­ir marg­vís­leg­ar vör­ur og þjón­ustu hjá N1. Í app­inu er nú einnig hægt að opna fyr­ir dælu og hægt að panta tíma í dekkja­skipti og smurþjón­ustu.

„Við vilj­um umb­una fólki sem vel­ur að vera með okk­ur til lengri tíma, ekki bara hópn­um sem hopp­ar á næsta til­boð,“ seg­ir Magnús. „Punkt­arn­ir leggj­ast inn sjálf­krafa og hægt að greiða með þeim í app­inu eða á staðnum. Þetta þarf ekki að vera flókið til að vera gott.“

Meira en markaðsátak

Magnús bros­ir við þegar hann fær spurn­ing­una um hvort „Stöðin mín“ sé svar við sam­keppn­inni á markaðnum. „Auðvitað er freist­andi að bregðast við með verðstríði en það telj­um við vera skamm­tíma­sjón­ar­mið. Okk­ur fannst áhuga­verðari spurn­ing­in um hvernig byggja mætti upp lang­tíma­sam­band við fólk. Hvernig við gæt­um látið þjón­ustu virka jafnt fyr­ir fólkið og fyr­ir­tækið. Þess vegna ein­beit­um við okk­ur að nota­gild­inu og að reyna gera lífið ein­fald­ara og skil­virk­ara. Það er leiðin sem við velj­um.“

Magnús bæt­ir við að vissu­lega sé þetta leið N1 til að „spila leik­inn“ en það sé gert með fólkið í for­grunni. „Á meðan aðrir binda viðskipta­vini við fjór­ar sam­felld­ar vik­ur þá gef­um við fólki frelsi til að velja sína stöð og njóta lægsta verðs all­ar vik­ur í sum­ar.“

Hann seg­ir fram­takið kynnt sem verk­efni í sum­ar, eða til 31. ág­úst, en taki fólk nýj­ung­inni vel hafi N1 all­an hug á að halda verk­efn­inu áfram og þróa lengra. „Jafn­vel bæta næst hraðhleðslu­stöðvum við þjón­ust­una.“

En hver eru svo næstu skref N1 í þjón­ustu og tækni­mál­um? Magnús seg­ir stöðugt til skoðunar nýir mögu­leik­ar, bæði í orku, app­inu, og ann­arri þjón­ustu. „Það sem skipt­ir okk­ur mestu máli er að vera í takti við fólkið sem við þjón­ust­um og bregðast við raun­veru­leg­um þörf­um þess. Það er margt í vinnslu sem ég hlakka til að líti dags­ins ljós með haust­inu.“