N1's Sustainability Report for 2025 released
N1 has published its sustainability report for 2025, which reviews the company's main focuses, projects and progress in the areas of environmental, social and governance.

Í skýrslunni er dregin upp mynd af starfsemi N1 um allt land og hvernig félagið vinnur markvisst að því að létta viðskiptavinum lífið dag eftir dag með einfaldri, aðgengilegri og áreiðanlegri þjónustu.
Með víðtæku neti þjónustustöðva og áframhaldandi uppbyggingu fjölbreyttra orkulausna leggur N1 sitt af mörkum til að gera orkuskipti aðgengilegri fyrir landsmenn. Samhliða því er unnið að því að þróa þjónustu, bæta innviði og einfalda daglegt líf viðskiptavina á ferðinni um landið.
Sjálfbærniskýrslan fjallar einnig um hvernig N1 vinnur að ábyrgum rekstri, styður við starfsfólk sitt og tekur þátt í samfélaginu með ýmsum verkefnum og samstarfi um land allt.
Horft til framtíðar
Í skýrslunni er einnig fjallað um áframhaldandi þróun orkulausna og þjónustu N1, með það að markmiði að styðja við orkuskipti, bæta aðgengi að hleðslu og þróa þjónustu sem mætir breyttum þörfum viðskiptavina.
Markmið félagsins er að byggja áfram upp þjónustunet sem styður við sjálfbæra þróun, skapar verðmæti og gerir daglegt líf einfaldara fyrir fólk og fyrirtæki um allt land.