Beint í efni
News article — 11. mars 2026

New menu

We are now introducing a new menu based on a simple idea: that customers always find something good on the go. In recent years, we have worked systematically to simplify our offering, sharpen what matters most, and continue to build on what we have done well.

Nýr matseðill: einfaldari, skýrari og fullur af góðu bragði

Markmiðið með breytingunum er tvíþætt: annars vegar að gera upplifun viðskiptavina skýrari og betri, og hins vegar að tryggja hagstætt verð. Á tímum þar sem aðföng og vörur hafa hækkað verulega í verði þótti okkur mikilvægt að stíga skref til baka, einfalda framboðið og leggja enn meiri áherslu á það sem skiptir viðskiptavini mestu máli: hraða, gæði og gott verð.

Við erum ekki að finna upp hjólið heldur einblína á það sem við vitum að virkar, við vildum búa til matseðil sem er einfaldari, skýrari og sterkari, þar sem gott bragð, gott verð og hraði fara saman.

Steinunn Björk Eggertsdóttir
Veitingastjóri

Með nýjum matseðli leggjum við meiri áherslu á vinsælustu vörurnar, betra flæði í eldhúsum og meira samræmi milli staða. Þannig verður auðveldara fyrir viðskiptavini að velja, auðveldara fyrir starfsfólkið að standa við gæðin og auðveldara fyrir okkur að halda fókus á því sem skiptir mestu máli: góðum mat á góðu verði, á sem skemmstum tíma fyrir viðskiptavini okkar. Á matseðlinum má einnig finna léttari kosti og möguleika sem henta ólíkum smekk, þannig að alir ættu að geta fundið sér eitthvað gómsætt á ferðinni.

Hluti af nýja matseðlinum er skemmtileg nýbreytni sem á eftir að þróast áfram með tímanum. Framvegis veljum við hamborgara ársins og pizzu ársins, og munu þeir réttir taka breytingum frá ári til árs. Til að finna fyrstu sigurvegarana efndum við til keppni milli eldhúsa um land allt. Úr varð að starfsfólkið í Borgarnesi bar sigur úr býtum í báðum flokkum.

Hamborgari ársins er Trufflutraffík, þar sem trufflan fær að njóta sín, og pizza ársins ber hið eftirminnilega nafn Salsagrímur, léttari og ferskari salsapizza með sínum eigin karakter.

„Það er sérstaklega gaman að sjá hvað hugmyndirnar koma sterkt innan úr rekstrinum sjálfum,“ segir Steinunn. „Bestu hlutirnir gerast oft þegar við hlustum á fólkið sem vinnur með vörurnar á hverjum degi og er í nánum tengslum við viðskiptavinina. Þannig getum við stillt hlutina betur saman og mætt þörfum og kröfum af meiri nákvæmni.“

Með þessum breytingum viljum við gera valið einfaldara, upplifunina betri og stoppin aðeins bragðbetri á sem skemmstum tíma. Nú er bara að gera sér ferð á næstu N1 stöð, fá sér gamla góða kunningja eða prófa eitthvað nýtt sem gæti átt eftir að verða uppáhald.