Temporary disruption of price watch connections
Work is underway to restore these connections to full capacity in collaboration with the relevant parties.

Með tilkomu nýs vefs N1 og uppfærslu á undirliggjandi kerfum hafa tengingar við ytri verðvaktir, svo sem Gasvaktina og GSM bensín, tímabundið ekki verið að uppfærast með eðlilegum hætti. Það getur því komið fyrir að verðbreytingar skili sér ekki samstundis þegar breytingar eiga sér stað innan dags.
Rétt og uppfærð eldsneytisverð má þó ávallt finna á n1.is, bæði undir hverri stöð fyrir sig og á verðtöflu vefsins, auk þess sem verðin eru aðgengileg í N1 appinu.
Unnið er að því að koma þessum tengingum aftur í fullt horf í samstarfi við viðkomandi aðila. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning á meðan unnið er að lausn málsins.