The Christmas sausage has arrived.
A hamburger sausage that captures the flavor of Icelandic Christmas without being heavy or overpowering.

Ísland á sér óteljandi jólahefðir, en það er alltaf sérstök stemning þegar nýjar hefðir fæðast og hvað þá jafn óvænt og á þjónustustöðvum N1. Þann 20. nóvember stígur N1 formlega inn í hátíðartímann með nýjustu og djörfustu jólanýjung sinni: hamborgarhryggspylsu sem fangar bragðið af íslenskum jólum án þess að vera þung eða yfirhlaðin.
Pylsan er fáanleg stök á 790 kr., en þau sem vilja fulla stemningu geta fengið hana á 990 kr. með lítilli dós af Egils jólaöli.
Okkur langaði að skapa eitthvað sem fólk þekkir, en upplifir á nýjan hátt, SS tók hugmyndina strax upp og vann með okkur að fullkominni samsetningu. Það er virkilega gaman að sjá þetta verða að veruleika.
Jólin á ferðinni og nú í pylsubrauði
Jólapylsan sameinar klassísk hráefni sem vel flest heimili þekkja: rauðkál, brúna sósu, kartöflusalat, súrsaðan rauðlauk og laufabrauðsmulning. Ásamt pylsu sem SS þróaði sérstaklega fyrir N1.
Jólapylsan verður í boði á flestum N1 verslunum á meðan birgðir endast, en um takmarkað upplag er að ræða. Akranes, Húsavík, Reykjavíkurvegur, Flugvellir og Gagnvegur eru ekki með í ár.