Verðþróun eldsneytis
Það er ekki alltaf einfalt að skilja hvað mótar eldsneytisverð á Íslandi. Hér sýnum við á einfaldan og gagnsæjan hátt hvernig dæluverð verður til, hvaða þættir hafa áhrif og hvert raunverulegt verð fyrir viðskiptavini er. Markmiðið er að tryggja skýra mynd og taka af allan vafa um hvernig verð mótast í raun.

Dæluverð eftir stöðvum
Skiptu um stöð til að sjá verðið þar. Verð getur verið mismunandi eftir stöðvum en listaverð er það sama um allt land.
- 95
Bensín 95 okt
289.4kr./Lítri - 98
Bensín 98 okt
353.7kr./Lítri - D
Dísel
342.5kr./Lítri - Ab
AdBlue
182kr./Lítri Rafmagn
50kr./kWh
Hvaða þættir ráða dæluverði?

- Dæluverð
Verð á dælu endurspeglar ekki bara heimsmarkaðsverð á olíu. Það mótast af fleiri þáttum, til dæmis þróun á heimsmarkaði, gengi krónunnar, flutnings- og dreifingarkostnaði innanlands og rekstri þjónustustöðva um allt land. Það þarf líka að standa undir þeirri innviða- og þjónustuuppbyggingu sem tryggir að hægt sé að veita stöðuga og örugga þjónustu, hvar sem er. Þess vegna fylgir dæluverð ekki heimsmarkaðinum krónu fyrir krónu, heldur breytist í takt við samspil þessara þátta.
- Skattar og gjöld
Um 30% af eldsneytisverði eru opinber gjöld: olíugjald, kolefnisgjald og virðisaukaskattur. Þessi gjöld eru föst hlutfalllega og breytast ekki þó heimsmarkaðsverð lækki eða hækki.
Þess vegna skilar 10% lækkun á heimsmarkaðsverði sér yfirleitt sem 2–3% lækkun á dæluverði, en ekki 10%. Þetta er grundvallarþáttur í allri umræðu um verðið og mikilvægt að hafa í huga.
- Lægsta verðið óháð staðsetningu
Raunverulegt verð sem flestir viðskiptavinir greiða er lægra en dæluverð. Stöðin mín gerir þér kleift að fá okkar lægsta verð á þeirri stöð sem þú notar mest, hvar sem þú ert á landinu, á einfaldan máta, án bindinga og tímabundinna tilboða. Þetta er þægileg leið til að tryggja hagstæðustu kjörin.
Spurt og svarað
Allt sem þú þarft að vita um verðþróun eldsneytisverðs. Sendu okkur línu, ef þú finnur ekki svarið sem þú leitar að
Rekstur, aðstæður og flutningskostnaður er mismunandi eftir landshlutum. Þetta er eðlilegt og í takt við það sem þekkist á Norðurlöndum.
Því yfir 30% verðsins eru skattar og gjöld sem breytast ekki í takt við heimsmarkaðinn, auk þess sem innlendur kostnaður vegur þungt í heildarverðinu.
Með því að velja stöðina þína í appinu færðu alltaf okkar lægsta verð, sama hvar þú ert á landinu.
Dæluverð er samsett úr mörgum þáttum – ekki bara heimsmarkaðsverði.
Það byggist á:
· heimsmarkaðsverði olíu
· gengi krónunnar
· flutnings- og dreifingarkostnaði
· rekstri þjónustustöðva um allt land
· og þeirri afkomu sem tryggir stöðugt, öruggt þjónustunet
Þess vegna hreyfist dæluverð ekki króna fyrir krónu í takt við heimsmarkaðsverð.
Um 30% af eldsneytisverði er fastur skattahluti: olíugjald, kolefnisgjald og virðisaukaskattur. Þessi hluti breytist ekki þó heimsmarkaðsverð lækki eða hækki.
Þess vegna þýðir 10% lækkun á heimsmarkaðsverði yfirleitt aðeins 2-3% lækkun á dæluverði fyrir viðskiptavini.
Fullyrðingar um að dæluverð eigi að fylgja heimsmarkaðsverði nákvæmlega eru villandi og taka ekki mið af raunverulegum kostnaði.
Við hjá leggjum áherslu á:
- að bregðast hratt við þegar markaðsaðstæður breytast
- að bjóða hagstæðustu kjörin í gegnum Stöðin mín
- að halda uppi öflugu þjónustuneti og rafhleðsluneti um allt land
- og að hafa verðlagningu gagnsæja og málefnalega
Veldu þína stöð!
Með því að velja stöðina þína í appinu okkar tryggir þú þér lægsta verð sem við getum boðið – bæði í eldsneyti og hraðhleðslu.
