Beint í efni
Dekkjahótel

Vertíðaskipti
án vesens

Geymdu dekkin hjá okkur milli vertíða og losaðu pláss heima. Dekkin eru þrifin, ástand þeirra skoðað og þau geymd við rétt skilyrði. Dekkjahótel er á öllum hjólbarðaverkstæðum okkar og þú getur komið með dekkin í geymslu allt árið, ekki bara við dekkjaskipti.

Faglegt mat
á dekkjum

Við greinum dekkin þín svo þú sjáir skýrar hvað er eftir og getir verið tímanleg/ur með næstu skref.

VERÐ OG ÞJÓNUSTA

Hvað kostar dekkjahótel og hvað er innifalið?

Verð á dekkjahóteli er 11.960 kr. fyrir hvert tímabil (hálft ár) fyrir fólksbíl. Sjá verð fyrir jeppa, sendibíla og vörubíla hér.

Þegar þú geymir dekkin á dekkjahóteli N1 fylgir full þjónusta:

  • Þrif á dekkjum og felgum: Salt, óhreinindi og bremsuryk eru þvegin af áður en dekkin fara í geymslu.
  • Faglegt ástandsmat: Mynstursdýpt er mæld, slitflötur kannaður og athugað hvort dekkin séu í stakk búin fyrir næsta tímabil. Ef kominn er tími á ný dekk látum við þig vita tímanlega.
  • Rétt geymsluskilyrði: Dekkin eru geymd í dimmu, þurru og svölu rými til að viðhalda gæðum gúmmísins og hámarka líftíma þeirra.
  • Trygging: Dekkin eru tryggð á meðan á geymslu stendur.
SVONA VIRKAR ÞETTA

Ferlið er einfalt

  1. Þú pantar tíma

    Þú bókar tíma í dekkjaskipti á vefnum eða í N1 appinu.

  2. Dekkjaskipti

    Þú mætir á verkstæðið á bókuðum tíma og við skiptum um dekk á bílnum.

  3. Dekk skráð og þrifin

    Dekkin sem fara af bílnum eru þrifin, ástand þeirra og mynstursdýpt greind og þau færð í örugga geymslu fram að næstu vertíð.

  4. Næstu dekkjaskipti

    Næst þegar vertíðin skiptist bókarðu tíma og við reddum rest.

Nýtt

Við metum dekkjaheilsuna

Við erum að byggja upp ferli þar sem dekkin fara í þrif, eru mynduð og með greiningu fáum við betri mynd af sliti og mynstri – svo þú sjáir skýrar hvað er eftir og getir verið tímanleg/ur með næstu skref.

Verkstæði N1

Hér finnur þú dekkjahótel N1

Dekkjahótel er á öllum hjólbarðaverkstæðum N1. Þar er hægt að fá geymd dekk gegn vægu gjaldi og nýta þannig eigið geymslupláss í annað.

Algengar spurningar um dekkjahótel