Olíuskipti og reglulegt viðhald
Pantaðu tíma hjá okkur og slepptu óþarfa bið. Við tökum á móti bílnum, klárum smurþjónustuna og þú ferð aftur út á veginn.
Til að bóka tíma fyrir jeppa breytta yfir 37 tommur, stærri sendibíla, húsbíla eða vörubíla skal hafa samband beint við verkstæði.

Hvað er smurþjónusta?
Smurþjónusta snýst um að halda bílnum í góðu standi og draga úr sliti. Við skiptum um olíu og síur eftir þörfum og förum yfir helstu atriði samkvæmt þjónustubók og ráðleggingum framleiðanda. Ef eitthvað kemur í ljós látum við þig vita og förum yfir næstu skref með þér.
Smur og smáviðgerðir
Á verkstæðum okkar getur þú líka fengið smáviðgerðir og einfaldar lagfæringar. Ef þú vilt láta skoða eitthvað sérstakt getur þú fært það inn í bókunina eða nefnt það við komu og þá látum við þig vita hvað er hægt að gera.
Allt í einni skoðun
Þegar bifreið kemur á smurstöð N1 er eftirfarandi framkvæmt eftir þörfum:
- Skipt er um olíu og olíusíu
- Loftsía er skoðuð og skipt um ef þarf
- Miðstöðvarsía (frjókornasía) er skoðuð og skipt um ef þarf
- Skipt er um eldsneytissíu ef þess þarf
- Magn og ástand olíu á gírkassa er skoðað og skipt um ef þarf
- Magn og ástand olíu á drifi er skoðað og skipt um ef þarf
- Magn og ástand vökva á vökvastýri er skoðaður og skipt um ef þarf
- Magn og ástand bremsuvökva er skoðað og mælt
- Magn og frostþol kælivatns er mælt, og fyllt á ef þarf
- Smurt er í koppa þar sem það á við
- Rúðuvökvi skoðaður og fyllt á ef þarf
- Rúðuþurrkublöð eru skoðuð og skipt um ef þarf (í samráði við eiganda)
- Ljós eru skoðuð og skipt um perur ef þarf
- Helstu slitfletir eru skoðaðir og eiganda ráðlagt ef eitthvað kemur í ljós sem þarfnast úrbóta.


