Beint í efni

Siðareglur

Samþykkt 27. janúar 2015

Við vitum að það sem við gerum og hvernig við gerum það hefur áhrif.

Þess vegna skiptir orðspor okkar máli og við viljum vinna á þann hátt að traust haldist, bæði innan fyrirtækisins og út á við. Siðareglurnar hér að neðan gilda um alla starfsemi og um öll sem starfa fyrir félagið: starfsfólk, stjórnendur, stjórn og verktaka.

Samfélagið

Við förum eftir öllum lögum og reglum sem eiga við starfsemi félagsins og leggjum okkur fram um að vera traustir þátttakendur í samfélaginu.

Viðskiptavinirnir

Við berum virðingu fyrir viðskiptavinum okkar og leggjum allt kapp á að veita þeim framúrskarandi vörur og þjónustu á sanngjörnu verði. Á sama hátt virðum við birgja okkar og metum að verðleikum hlutverk þeirra í virðiskeðjunni.

Starfsfólkið

Við leggjum kapp á að tryggja öryggi og vellíðan starfsfólks félagsins með aðbúnaði á vinnustað, fræðslu og þjálfun. Við fylgjum viðurkenndum öryggis- og heilsuverndarstöðlum. Við erum umburðarlynd, tökum tillit til ólíkra sjónarmiða og leyfum hæfileikum hvers og eins að njóta sín. Við stuðlum að jafnrétti á vinnustað og erum málefnaleg og sanngjörn í öllum okkar samskiptum. Við líðum hvorki einelti né aðra áreitni.

Hluthafarnir

Við veitum hluthöfum og öðrum markaðsaðilum réttar og skilmerkilegar upplýsingar um rekstur félagsins eins og hæfir skráðu félagi á markaði. Félagið fer eftir reglum markaðarins og góðum stjórnarháttum.

Umhverfið

Við sýnum umhverfinu virðingu og leitumst við að bjóða umhverfisvænar vörur og þjónustu. Við leggjum okkur fram um að valda sem minnstum skaða á umhverfinu með starfsemi félagsins og fylgjum viðurkenndum umhverfis-, gæða-, öryggis- og heilsufarsstöðlum.

Trúnaður

Við virðum þagnarskyldu um þær trúnaðarupplýsingar, sem okkur berast, og helst sú þagnarskylda þótt látið sé af störfum. Við nýtum okkur ekki trúnaðarupplýsingar til ávinnings, hvorki fyrir okkur sjálf né aðra.