Beint í efni
Um okkur

Hluti af deginum um land allt!

Hjá okkur mætast ferðalög, daglegt amstur og allt sem þarf að redda í leiðinni. Stundum er það bara að stoppa og fylla á. Suma daga eru það dekkin, bílaþvottur, kaffisopi eða eitthvað praktískt sem bjargar deginum. Aðra daga er það heildarlausn fyrir fyrirtæki sem þarf að halda hlutunum gangandi dag eftir dag.

Við rekum yfir 150 þjónustustaði um allt land. Þannig erum við til staðar þar sem fólk býr, vinnur og ferðast, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur líka á stöðum þar sem skiptir oft mestu máli að hafa greitt aðgengi að góðri þjónustu.

Samfélag og umhverfi

Við erum hluti af innviðum landsins og höldum því á hreyfingu á degi hverjum. Þessu fylgir ábyrgð og því stígum við stöðugt fleiri skref til að draga úr umhverfisáhrifum í rekstri og byggja upp ábyrgari virðiskeðju. Með skýrum markmiðum og betri yfirsýn finnum við lausnir sem virka og létta enn einn daginn fyrir bæði fólk og fyrirtæki.

Frá degi til dags

Á síðasta ári seldum við ófáa kaffibolla, enn fleiri pylsur og þúsundir bíla fóru í gegnum þvottastöðvarnar. Tölurnar segja ekki alla söguna en gefa samt góða mynd af daglegum verkefnum. Það gleður okkur að vera hluti af deginum hjá svona mörgum, ár eftir ár.