Mjúk sigling með okkur
Við þjónustum sjávarútveginn með eldsneyti, smurefnum, búnaði og vörum fyrir daglegan rekstur. Hvort sem þú ert með smábát, skip eða útgerð í landi hjálpum við þér að halda starfseminni gangandi allt árið.

Við þekkjum þarfir sjávarútvegsins
Þjónusta um land allt
Þétt net afgreiðslustaða og bátadæla um land allt tryggir gott aðgengi að þjónustu þegar á þarf að halda.
Sérfræðiþekking
Við veitum ráðgjöf um smurefni og búnað og aðstoðum þig við að finna lausnir sem henta þínum rekstri á sjó.
Gæði í fyrirrúmi
Við leggjum áherslu á gæðaeldsneyti og smurefni fyrir krefjandi aðstæður í samstarfi við ExxonMobil.
Alþjóðleg skipaþjónusta
Við þjónustum skip víða um heim í gegnum alþjóðlegt skipaþjónustunet.
Gæði fyrir krefjandi aðstæður
Smurefni fyrir skip og báta uppfylla kröfur véla- og tækjaframleiðenda. Við aðstoðum við val á réttum smurefnum og útbúum smurkort fyrir skip og báta í samráði við framleiðendur vélbúnaðar. Olíurannsóknir hjálpa síðan til við að fylgjast með ástandi smurefna og vélbúnaðar og styðja við fyrirbyggjandi viðhald.
Við bjóðum einnig upp á dælingu smurolíu í tanka, meðal annars um borð í skipum.
Dælingargjald: 36.850 kr. m/vsk.

Þarftu aðstoð?
Hvort sem þig vantar ráðgjöf um smurefni, eldsneyti, vörur eða þjónustu erum við tilbúin að aðstoða. Hafðu samband og við finnum lausnina saman.
