Beint í efni
Fyrirtækjaþjónusta

Við skipuleggjum eldsneytisdreifingu með öryggi og rekstraröryggi viðskiptavina að leiðarljósi. Birgðabílar keyra samkvæmt fyrirfram ákveðinni dreifingaráætlun sem byggir á pöntunum frá deginum áður. Þannig tryggjum við betra flæði, skýrari afhendingar og minni óvissu.

Áður en þú pantar

Pantanir þurfa að berast fyrir kl 16:00 virka daginn fyrir afhendingu. Afhending fer fram samkvæmt þjónustusvæði og afgreiðsludögum.

Ef afhending á að hefjast fyrir kl 08:00 eða pöntun er 100.000 lítrar eða meira þarf pöntun að berast fyrir kl. 12:00 virka daginn áður.

Pöntunarform

Gættu þess að skrá upplýsingar í stjörnumerkta reiti*

Afgreiðslugjöld

ÞjónustaVerð m/vsk.
Afgreiðsla undir 200 ltr. 6.750 kr.
Verð kr./lítra
Afgreiðsla 200 ltr. eða meira 7,8 kr./lítra
Gasolía með olíubíl 12,4 kr bætist við hefðbundið listaverð fyrir gasolíu á tæki/vinnuvélar afgreidd með olíubíl.12,4 kr./lítra

Afgreiðsla utan hefðbundins þjónustutíma

Samdægursafgreiðsla
Hægt er að óska eftir samdægursafgreiðslu þar sem afgreitt er alla virka daga. Pöntun þarf að berast fyrir kl. 12:00 og er afgreiðsla háð aðstæðum.

Utan þjónustutíma
Hægt er að óska eftir afgreiðslu utan skilgreindra afgreiðslutíma eða afgreiðsludaga. Þjónustan er háð aðstæðum og aukagjaldi samkvæmt verðskrá.

ÞjónustaVerð m/vsk.
Flýtiagreiðsla 8.183 kr
Afgreiðsla utan þjónustutíma 45.800 kr
Afgreiðsla kl 21:00 - 23:00 91.570 kr
Afgreiðsla kl. 23:30 - 04:30 137.353 kr

Komdu í áskrift

Fáðu eldsneyti afhent reglulega á tanka eða tæki. Við finnum afhendingarfyrirkomulag sem hentar þínum rekstri.