Beint í efni
Sjávarútvegur
Eftirlit með gæðum

Smábáta- og skipaþjónusta

Þær eldsneytistegundir sem við seljum til skipa og báta, eru framleiddar eftir ströngustu kröfum sem gerðar eru til slíks eldsneytis. Eftirlit með gæðum nær alla leið til viðskiptavinanna. Auk þess eru allir eldsneytisfarmar rannsakaðir sérstaklega af flokkunarfélagi sem gætir hagsmuna skipaeigenda.

Allt fyrir bátinn

Hágæða smurefni fyrir báta og skip

Við bjóðum smurefni sem skipa- og bátaeigendur geta treyst. Vörurnar okkar eru sérsniðnar að kröfum hvers vélar- og tækisframleiðanda, þrautreyndar áður en þær koma á markað, og tryggja að vélar þínar gangi sem best, hvort sem þú ert með smábát eða stærra skip.

Þjónusta sem einfaldar lífið á sjó

  • Dæling úr tunnum um borð í skip: fljótlegt og öruggt.
  • Smurolíudæling með dælubíl: dælingargjald aðeins 36.580 kr.

Allir viðskiptavinir N1 skipaþjónustu njóta aðstoðar við val smurefna og eldsneytis. Við útbúum sérsmurkort fyrir öll skip og báta í samráði við framleiðendur vélbúnaðar, auk þess sem tæknilegar upplýsingar og aðstoð við véltæknimál eru ávallt aðgengilegar.

Sterkt net þjónustu um allt land

  • Þétt net afgreiðslustaða um allt land.
  • Alþjóðleg þjónusta fyrir skip um allan heim.
  • Samvinna við Exxon Mobil tryggir hágæða smurefni og eldsneyti.

Persónuleg þjónusta

Jóhann, sérfræðingur okkar í sjóvörum, er til taks fyrir ráðgjöf um allar vörur sem þú þarft til að halda bát eða skipi í toppstandi.

Sími: 440 1047 (9:00–17:00 alla virka daga)
Tölvupóstur: johanni@n1.is