Beint í efni
Fjölbýli

Rafvæddu
fjölbýlið

Við aðstoðum og veitum þær upplýsingar sem þarf til að taka fjölbýlið inn í framtíðina.

Fáðu N1 stöð
heim til þín

Það fylgir því frelsi að geta hlaðið rafbílinn hvenær sem þér hentar.

Fjölbýlislausnir

Zaptec Pro er nett og því auðvelt að koma henni fyrir, hvort sem það er í bílskúr eða á bílastæði. Skoðaðu hvernig Zaptec Pro hentar fyrir bílinn þinn og fjölbýlið.

  • Greining og hönnun

    Húsfélög þurfa að tryggja að fjárfestingin virki til framtíðar. Með þarfagreiningu N1 er þitt húsfélag í öruggum höndum.

  • Mæld notkun

    N1 heldur utan um notkun hvers og eins með öruggum hætti. Hver notandi getur fylgst með sinni notkun.

  • Vöxtur eftir þörfum

    Þarfagreining N1 sér til þess að fjárfesting sé hagkvæm í upphafi og að hleðslukerfið vaxi eftir þörfum.

  • Greiðsluþjónusta

    N1 sér til þess að hver notandi greiði fyrir sína hleðslunotkun.

Zaptec Pro

Sveigjanleg uppsetning

Hægt er að bæta auðveldlega við fleiri hleðslustöðvum og stjórna þeim á einfaldan hátt í gegnum Zaptec Portalinn.

Zaptec Pro hleður á þremur jafnt sem einum fasa og nær allt að 22 kW hleðslugetu á klukkustund.

Snjallar lausnir

Zaptec Pro er búin nýjustu tækni og tengist neti með WiFi eða 4G LTE-M.

Hægt að stýra hleðslustöðinni í gegnum app í símanum.

Einkaleyfisvarin tækni. Hleður fjölda bíla án kostnaðarsamrar uppfærslu þökk sé snjallari fasa- og álagsdreifingu.

Uppfyllir kröfur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

5 ára verksmiðjuábyrgð

Zaptec Pro er hönnuð, þróuð og framleidd í Noregi, þar sem veðuraðstæður eru sambærilegar þeim sem við þekkjum á Íslandi.

Hleðslustöðin er því sérlega vel búin til að standast íslenskt veðurfar og er byggð til að endast.

Ráðgjöf

Þjónusta
og ráðgjöf

Við veitum þér ráðgjöf í sambandi við allt sem tengist hleðslustöðvum og uppsetningu þeirra. Hafðu samband og við svörum eins fljótt og auðið er.