Beint í efni
Opið í dag 08:00–24:00

Alla daga vikunnar

Þegar eitthvað kemur upp á vegi er gott að vita hvert er hægt að leita.

Vegaaðstoð N1 er þér innan handar milli kl. 8:00 og 24:00 allan ársins hring og þjónustar bíla af öllum stærðum og gerðum.

Hjálpaðu okkur að hjálpa þér

  1. Hvar ert þú?

    Nákvæm staðsetning skiptir okkur höfuðmáli. Með henni getum við fundið þig fljótt og sent aðstoð á réttan stað.

  2. Hvað kom upp á?

    Lýstu því sem kom upp á eins vel og þú getur svo við getum metið hvaða aðstoð hentar best.

  3. Hvaða bíl ert þú á?

    Upplýsingar um tegund, lit og skráningarnúmer bílsins hjálpa okkur að þekkja rétt ökutæki.

  4. Ert þú á öruggum stað?

    Öryggi þitt er í forgangi. Láttu okkur vita hvort þú sért á öruggum stað eða þurfir leiðbeiningar um hvernig best er að tryggja öryggi þitt á meðan beðið er eftir aðstoð.

Hvernig getum við aðstoðað?

Vegaaðstoðin sinnir afmörkuðum verkefnum fljótt og örugglega.

  • Höfuðborgarsvæðið

    • Sprungið dekk
    • Almenn hjólbarðaþjónusta
    • Afdæling eldsneytis
    • Önnur verkefni sem snúa að farartækjum
  • Akureyri og nágrenni

    • Sprungið dekk
    • Almenn hjólbarðaþjónusta

Vegaaðstoð - verðskrá

ÞjónustaVerð frá
Þjónustubíll 36.990 kr.
Afdæling Innifalið er afdæling í allt að eina klukkustund; ef verkið tekur lengri tíma bætist við tímagjald38.990 kr.

Útkall þjónustubíls er rukkað sem tímagjald og síðan greitt samkvæmt verðskrá N1 fyrir þá aðstoð sem veitt er.