Viltu sækja eða fá sent?
Hvort sem þú vilt sækja pöntunina eða fá hana senda, finnur þú afhendingarmáta fyrir einstaklinga og fyrirtæki um allt land.
Sækja hjá N1
Sæktu pöntunina þína að kostnaðarlausu í vöruhús N1 að Klettagörðum 13.
Viltu sækja samdægurs? Pantaðu í síðasta lagi klukkustund fyrir lokun og við höfum pöntunina tilbúna fyrir þig.
Staðsetning: Klettagarðar 13, 104 RVK

Við komum pöntuninni til þín
Fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu geta fengið pantanir afhentar beint á áfangastað.
Pantaðu fyrir kl. 11:30 og við komum pöntuninni til þín samdægurs.
Þjónustugjald er 2.432 kr. m/vsk. fyrir pantanir undir 30.000 kr. m/vsk.
Athugið: Fyrirtækjadreifing N1 nær ekki til Kjalarness.

Sending um land allt
Við sendum vefpantanir um land allt með Dropp, Póstinum, Eimskip og Samskipum. Hér finnur þú upplýsingar um afhendingartíma og kostnað hjá hverjum flutningsaðila.
Dropp
Fáðu pöntunina senda á Dropp afhendingarstað að eigin vali.
Afhendingartími: 0-3 virkir dagar
Pantanir fyrir kl. 11:00 geta verið afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni tekur afhending 1–3 virka daga.
Kostnaður: Samkvæmt verðskrá Dropp
Þú færð SMS frá Dropp þegar pöntunin er tilbúin til afhendingar.
Pósturinn
Fáðu pöntunina senda á Pósthús að eigin vali.
Afhendingartími: 0-3 virkir dagar
Pantanir fyrir kl. 11:00 geta verið afhentar samdægurs á höfuðborgarsvæðinu. Á landsbyggðinni tekur afhending 1-3 virka daga.
Kostnaður: Samkvæmt verðskrá Póstins
Kaupandi fær SMS frá Póstinum þegar pöntun er tilbúin til afhendingar.
Eimskip
Fáðu pöntunina senda með Eimskip.
Afhendingartími: Samkvæmt afhendingartíma Eimskips
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:30 fara frá vöruhúsi N1 samdægurs.
Kostnaður: Samkvæmt verðskrá Eimskips
Þú færð SMS frá Eimskip þegar sendingin er tilbúin til afhendingar.
Samskip
Fáðu pöntunina senda með Samskipum
Afhendingartími: Samkvæmt afhendingartíma Samskipa
Pantanir sem berast fyrir kl. 12:30 fara frá vöruhúsi N1 samdægurs.
Kostnaður: Samkvæmt verðskrá Samskipa
Þú færð SMS frá Samskipum þegar sending er tilbúin til afhendingar.
Spurt og svarað
Hér finnur þú algengar spurningar og svör fyrir afhendingar vefverslunar.
Sendingarkostnaður er ekki innheimtur í greiðsluferli vefverslunar. Viðkomandi flutningsaðili rukkar fyrir sendinguna samkvæmt sinni verðskrá.
Til að pöntun sé tilbúin til afhendingar samdægurs þarf hún að berast í síðasta lagi klukkustund fyrir lokun vöruhússins. Annars er hægt að sækja pöntunina á opnunartíma vörushússins næsta virka dag.
Sjá opnunartímaSumar vörur þurfa sérstaka meðhöndlun eða flutning, til dæmis vegna stærðar, þyngdar eða ef um hættumerkta vöru er að ræða. Því geta afhendingarmátar sem standa til boða verið mismunandi eftir því hvaða vörur eru í pöntuninni.
Þegar pöntunin hefur farið frá vöruhúsi N1 tekur viðkomandi flutningsaðili við samskiptum vegna sendingarinnar. Þú færð upplýsingar um stöðu og afhendingu beint frá flutningsaðilanum.
Ef þig vantar nánari upplýsingar um sendinguna eftir að hún hefur farið frá okkur skaltu hafa samband við viðkomandi flutningsaðila.
Hafðu samband við þjónustuver N1 eins fljótt og auðið er og við könnum hvort hægt sé að breyta afhendingu pöntunarinnar.
Ef þú ert að versla fyrir fyrirtæki þarftu að vera á fyrirtækjaaðganginum. Opnaðu Mitt N1 og veldu fyrirtækið undir „Skipta um aðgang“. Þá birtast þeir afhendingarmátar sem standa fyrirtækinu til boða.
Ef afhendingarmátinn sem þú leitar að birtist enn ekki skaltu hafa samband við þjónustuver og við aðstoðum þig.
Þarftu aðstoð?
Ertu með spurningu um afhendingu eða veist ekki hvaða afhendingarmáti hentar? Við aðstoðum þig.
