Spurningar?
Hér finnur þú svör við algengum spurningum um pantanir, greiðslur, afhendingu, vöruskil og fyrirtækjaaðgang í vefverslun N1.
Pantanir og greiðslur
Þegar pöntunin hefur farið í gegn færðu staðfestingu í tölvupósti á netfangið sem þú gafst upp við kaupin. Ef þú færð enga staðfestingu skaltu athuga ruslpóstinn eða hafa samband við okkur.
Ef þú þarft að breyta eða hætta við pöntun skaltu hafa samband við okkur eins fljótt og hægt er. Ef vinnsla pöntunar er þegar hafin getum við ekki alltaf tryggt að hægt sé að gera breytingar.
Ef vara vantar í pöntunina skaltu hafa samband við okkur með pöntunarnúmerið við höndina. Við skoðum málið og finnum lausn með þér.
Þú getur greitt með greiðslukorti í vefverslun N1. Fyrirtæki í reikningsviðskiptum geta einnig verslað samkvæmt þeim greiðslukjörum sem samið hefur verið um.
Kvittun fyrir kaupunum er send á netfangið sem þú gafst upp við pöntun. Þú getur einnig nálgast kvittanir og reikninga á Mínum síðum undir „Yfirlit – Reikningar“.
Já. Fyrirtæki þurfa ekki að vera í reikningsviðskiptum til að versla í vefverslun N1. Þú getur tengt fyrirtækið við aðganginn þinn og greitt fyrir kaupin í staðgreiðslu. Ef fyrirtækið vill greiða með reikningi er hægt að sækja um reikningsviðskipti hjá N1.
Afhendingar
Sendingarkostnaður er ekki innheimtur í greiðsluferli vefverslunar. Viðkomandi flutningsaðili rukkar fyrir sendinguna samkvæmt sinni verðskrá.
Til að pöntun sé tilbúin til afhendingar samdægurs þarf hún að berast í síðasta lagi klukkustund fyrir lokun vöruhússins. Annars er hægt að sækja pöntunina á opnunartíma vörushússins næsta virka dag.
Sjá opnunartímaSumar vörur þurfa sérstaka meðhöndlun eða flutning, til dæmis vegna stærðar, þyngdar eða ef um hættumerkta vöru er að ræða. Því geta afhendingarmátar sem standa til boða verið mismunandi eftir því hvaða vörur eru í pöntuninni.
Þegar pöntunin hefur farið frá vöruhúsi N1 tekur viðkomandi flutningsaðili við samskiptum vegna sendingarinnar. Þú færð upplýsingar um stöðu og afhendingu beint frá flutningsaðilanum.
Ef þig vantar nánari upplýsingar um sendinguna eftir að hún hefur farið frá okkur skaltu hafa samband við viðkomandi flutningsaðila.
Hafðu samband við þjónustuver N1 eins fljótt og auðið er og við könnum hvort hægt sé að breyta afhendingu pöntunarinnar.
Ef þú ert að versla fyrir fyrirtæki þarftu að vera á fyrirtækjaaðganginum. Opnaðu Mitt N1 og veldu fyrirtækið undir „Skipta um aðgang“. Þá birtast þeir afhendingarmátar sem standa fyrirtækinu til boða.
Ef afhendingarmátinn sem þú leitar að birtist enn ekki skaltu hafa samband við þjónustuver og við aðstoðum þig.
Vöruskil
Ef þú vilt skila eða skipta vöru sem keypt var í vefverslun getur þú gert eftirfarandi:
1. Skila frítt í vöruhús okkar:
- Þú getur skilað vörunni í vöruhús okkar að Klettagörðum 13, 104 Reykjavík, án endurgjalds.
- Hafðu kvittun/reikning meðferðis og gefðu upplýsingar um endurgreiðslu á staðnum.
2. Senda vöruna til baka:
- Merktu sendingarumbúðirnar með eftirfarandi upplýsingum. Ekki líma beint á vöruna eða upprunalegar umbúðir hennar.
Vöruhús N1
b/t Vefverslun N1
Klettagarðar 13, 104 Reykjavík- Sendu kvittun/reikning ásamt upplýsingum um endurgreiðslu á vefverslun@n1.is
Athugið:
- Endurgreiðsla fer fram þegar varan hefur borist í vöruhús okkar og staðfest að hún sé í upprunalegu ástandi.
- Kostnaður fyrir flutning frá kaupanda er á ábyrgð og kostnað kaupanda.
Best er að skila eða skipta vöru í þeirri verslun N1 þar sem hún var keypt. Ef það hentar ekki, hafðu samband við þjónustuver og við aðstoðum þig með næstu skref.
Við vöruskil er vara bakfærð á viðskiptamannareikning eða endurgreidd á kreditkort eða bankareikning. Í öðrum tilvikum getur endurgreiðsla farið fram með inneignarnótu.
Endurgreiðsla nær aðeins til vöruverðs. Sendingar- og flutningskostnaður er ekki endurgreiddur.
Inneignarnóta gildir í eitt ár frá útgáfudegi og má nota við vöru- og þjónustukaup á öllum starfsstöðvum N1.
Ef vara reynist gölluð skaltu hafa samband við okkur. Við metum vöruna og bjóðum viðgerð ef því verður komið við. Ef ekki er hægt að gera við vöruna eða útvega eins vöru er hún endurgreidd.
Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegu ástandi, með öllum merkjum og fylgihlutum sem henni fylgdu. Umbúðir þurfa einnig að vera óskemmdar.
Kvittun eða reikningur þarf að fylgja með eða vera sendur til okkar með tölvupósti.
Þú getur skilað gaskút á næstu þjónustustöð N1. Einnig er hægt að skila 5 og 10 kg kútum í gassjálfsala N1.
Ef þú skilar tómu hylki í gassjálfsala án þess að taka nýtt þarftu að hafa samband við þjónustuver N1 til að fá endurgreitt. Aðeins eitt hylki er endurgreitt.
Gaskútar eru eingöngu endurgreiddir inn á viðskiptamannareikning eða í formi inneignarnótu.
Ekki er hægt að skila notuðum vörum eða tóbaki. Sérstakar reglur gilda um rafmagnsvörur, sjá nánar hér fyrir neðan.
Rafmagnsvörum er ekki hægt að skila. Ef um er að ræða hleðslustöð eða fylgihluti hennar skaltu hafa samband við þjónustuver og við aðstoðum þig með næstu skref.
Ef varan er gölluð skaltu einnig hafa samband við þjónustuver.
Nýskráning í vefverslun
Prókúruhafi getur tengt fyrirtækið beint við sinn aðgang. Ef þú ert ekki prókúruhafi er beiðni send til prókúruhafa til samþykktar.
Nei, fyrirtæki geta stofnað fyrirtækjaaðgang og verslað í staðgreiðslu. Ef þú vilt greiða með reikningi getur þú sótt um reikningsviðskipti hjá N1.
Já, fleiri notendur geta tengst sama fyrirtæki og verslað fyrir þess hönd.
Þegar aðgangurinn þinn hefur verið tengdur fyrirtækinu birtast kjör fyrirtækisins þegar þú ert innskráð/ur og verslar fyrir þess hönd.
Já. Þú getur tengst fleiri en einu fyrirtæki og valið fyrir hvaða fyrirtæki þú verslar þegar þú ert innskráð/ur.
Nei. Skráðu þig inn með núverandi aðgangi og tengdu fyrirtækið við hann.
Hafðu samband við þjónustuver og við aðstoðum þig við að komast áfram.
Þarftu aðstoð?
Ertu með spurningu um vöru, pöntun eða þjónustu? Hafðu samband og við aðstoðum þig.
