Beint í efni
25. mars 2026

Allt í steik á Blönduósi

Við erum að vinna að því að gera stöðina enn betri fyrir þig

Nú er allt að gerast á stöðinni okkar á Blönduósi. Þar hafa margir stoppað til að fylla á tankinn, teygja úr sér og fá sér eitthvað gott í gogginn. Nú er komið að því að gefa stöðinni nýtt og betra yfirbragð svo stoppin verði enn þægilegri í framtíðinni.

Á meðan framkvæmdum stendur verður eldhús og veitingasvæði stöðvarinnar lokað tímabundið. Það verður þó áfram hægt að koma við, fylla á tankinn, fá sér pylsu eða léttar veitingar og nýta salernin. Ef þið eigið leið um þá minnum við einnig á stöð okkar í Staðarskála.

Framkvæmdum fylgir óhjákvæmilega rask en við hlökkum til að taka á móti ykkur á endurbættri stöð á Blönduósi í byrjun sumars.