Beint í efni
22. júní 2026

Dekkjaþjónusta á vettvangi léttir fyrirtækjum reksturinn

Sparar tíma og kostnað fyrir fyrirtæki þar sem þjónustan er framkvæmd á staðnum og niðritími tækja minnkaður eins og kostur er.

Sérútbúin kló kemur glænýju dekki á felguna

Stór tæki bíða ekki eftir verkstæðistímanum. Þegar vinnuvél eða atvinnubíll stendur kyrr stöðvast oft meira en bara eitt tæki, verkefni tefjast, kostnaður hækkar og verðmætur tími tapast.

Þess vegna býður N1 upp á dekkjaþjónustu á vettvangi fyrir atvinnubíla, vinnuvélar og sérhæfðan búnað. Við komum þangað sem tækið er og vinnum verkið á staðnum.

Minni bið, minni kostnaður, þýðir meiri tími í reksturinn

Með sérútbúnum þjónustubílum, öflugum búnaði og reynslumiklum dekkjasérfræðingum getum við sinnt umfelgun og annarri dekkjaþjónustu þar sem tækið er staðsett. Það þýðir að ekki þarf að flytja stór og þung tæki af vinnusvæði nema nauðsyn krefji. Fyrirtæki spara þannig bæði tíma og flutningskostnað og geta haldið verkefnum gangandi með sem minnstri röskun.

Þjónustan hentar meðal annars:

  • stórum vinnuvélum
  • atvinnubílum
  • landbúnaðartækjum
  • sérhæfðum tækjum sem erfitt eða kostnaðarsamt er að flytja

Búkolla afgreidd á einum degi

Nýlegt dæmi um þjónustuna var þegar dekkjasérfræðingar N1 mættu á vinnusvæði Fossvéla til að sinna umfelgun á búkollu, sérhæfðu tæki í eigu fyrirtækisins. Í stað þess að flytja tækið á verkstæði var verkið unnið þar sem tækið var staðsett og því lokið innan dags. Það skilaði einfaldari framkvæmd, minni töfum og styttri niðritíma fyrir Fossvélar.

„Þegar stór vinnuvél þarf að fara af vinnusvæði getur það tekið marga daga að flytja hana, vinna verkið og koma henni aftur í notkun. Með dekkjaþjónustu á vettvangi getum við oft klárað umfelgunina innan dags. Það munar miklu fyrir viðskiptavininn,“

Maks Krapivko
sölustjóri hjólbarðaþjónustu N1 Klettagörðum

Við færum þjónustuna nær viðskiptavininum

Með dekkjaþjónustu á vettvangi viljum við létta fyrirtækjum reksturinn, draga úr óþarfa töfum og tryggja að verðmæt tæki komist sem fyrst aftur til vinnu.

Nánari upplýsingar um dekkjaþjónustu fyrir atvinnubíla og vinnuvélar fást hjá N1 Klettagörðum 4, 104 Reykjavík

Búkolla 1