Gassjálfsalar - gasalega þægilegt
Í fyrsta áfanga hafa verið settir upp sjálfsalar við N1 Gagnvegi, Norðlingaholti, Hringbraut, Fossvogi, Hafnargötu, Flugvöllum og á Fiskislóð.

Viðskiptavinir geta nálgast gas þegar þeim hentar, nú allan sólarhringinn.
N1 hefur nýlega sett upp gassjálfsala. Sjálfsalarnir gera viðskiptavinum kleift að kaupa gas á einfaldan og þægilegan máta þegar þeim hentar, án tafar og án þess að þurfa að miða við opnunartíma stöðva.
„Með gassjálfsölunum erum við að gera einfaldan hlut enn einfaldari, það að geta nálgast gas þegar þörfin kallar á, allan sólarhringinn,“ segir Jón Viðar Stefánsson, forstöðumaður einstaklingssviðs N1.
Í sjálfsölunum er gas fáanlegt í 5 kg og 10 kg einingum. Jafnframt geta viðskiptavinir skilað notuðum gaskútum beint í sjálfsalann, sem einfaldar ferlið og sparar tíma. Fyrst um sinn eru sjálfsalarnir staðsettir á höfuðborgarsvæðinu en markmiðið er að gera gaskúta aðgengilega á fleiri stöðum í kringum landið á næstu misserum, í takt við áherslur N1 um að gera daglegt líf einfaldara og aðgengilegra.