Beint í efni
8. júní 2026

Enn einn grillvagninn opnar á Höfn

Það er kominn matur!

Girnilegir hamborgarar og djúpsteiktur humar er meðal annars þess sem verður í boði á Höfn

Það er líf og fjör á Höfn í Hornafirði þar sem nýr grillvagn var opnaður á dögunum og hefur ilmurinn þegar farið að laða að svanga heimamenn og ferðalanga. Vagninn mun bjóða upp á spennandi nýjungar á borð við humar í orlý, fisk og franskar og að sjálfsögðu verða girnilegir og glóðarsteiktir hamborgarar líka á boðstólum.

Matarvagninn er staðsettur í hjarta bæjarins og er tengdur við N1 á Vesturbraut. Gestir geta hreiðrað um sig í veitingasal, setið úti ef vel viðrar eða gripið með sér og notið heima.

Barnaboxið verður á sumartilboði fram til 13. ágúst og bjóðum við upp á ostborgara, franskar og glaðning á aðeins 899,-.

"Við erum hrikalega spennt yfir því að opna á ný grillið á Höfn í Hornafirði. Hugmyndin er einföld: heiðarlegur matur, fljót afgreiðsla og hrikalega gott bragð."

Bragi Fannar Þorsteinsson
Stöðvastjóri á Höfn
Aðalmynd

Ostborgari

Ostur, salat, tómatar og hamborgarasósa. Franskar, kokteilsósa og gos úr vél.

2.990,-
Aðalmynd

Trufflutraffík

Ostur, beikon, súrar gúrkur, trufflu majó, karmellaður laukur og salat. Franskar, kokteilsósa og gos úr vél.

3.190,-
Aðalmynd

Beikonborgari

Ostur, beikon, salat, tómatar og hamborgarasósa. Franskar, kokteilsósa og gos úr vél.

3.190,-
Aðalmynd

Barnaborgari

Ostur, salat, tómatsósa og franskar

1.690,-
Aðalmynd

Fiskur og franskar

Ýsa í orly, remúlaði, sítróna, hrásalat og franskar

3.390,-
Aðalmynd

Humar í orly

Humar í orly, sítróna, hrásalat og chilli majó

2.990,-