Beint í efni
Frétt — 22. október 2025

Joe & the Juice og N1 í samstarf

N1 og Joe & The Juice hafa undirritað samning um tvo nýja staði á stöðvum N1. Nýju staðirnir verða á N1 Borgartúni í Reykjavík og í húsnæði N1 við Hafnargötu 86 í Keflavík.

Samningurinn markar endurkomu Joe & the Juice til Suðurnesja, en fyrirtækið starfrækti áður tvo veitingastaði á Keflavíkurflugvelli. Framkvæmdir hefjast á næstunni og áætlað að báðir staðir opni snemma á nýju ári.

Á báðum stöðum verður í boði bílalúga til að þjóna viðskiptavinum sem meta hraða og þægindi. Fólk getur þá pantað fyrir fram í Joe appinu, sem styttir biðtíma og sótt pantanir sínar fljótt og þægilega.

Samhliða breytingunum hættir Nesti ferskt og fljótt í Borgartúni en Ísey Skyr Bar heldur áfram þar sem Nesti var áður.

Við erum mjög ánægð að fá Joe & the Juice til liðs við okkur á þessum tveimur stöðum og ekki síst að glæða húsið á Hafnargötunni aftur lífi, sem skiptir okkur miklu máli. Joe er vörumerki sem fellur vel að stefnu okkar um þægindi og gæði, og bílalúgan er skref í þá átt að mæta enn betur þörfum viðskiptavina.

Jón Viðar Stefánsson
Forstöðumaður einstaklingssviðs N1

„Þetta er ótrúlega spennandi tímamót fyrir okkur,“ segir Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Joe & The Juice á Íslandi. „Að snúa aftur til Keflavíkur er eins og heimkoma og nú í hjarta bæjarins þar sem við náum bæði heimamanna og ferðamanna. Borgartún opnar svo nýja möguleika fyrir okkur í Reykjavík. Við hlökkum til að bjóða viðskiptavinum sömu frábæru Joe-stemninguna og þá orku sem gerir hvern dag betri.“

Joe & the Juice starfrækir í dag átta kaffihús víðsvegar um höfuðborgarsvæðið.