Frétt — 28. október 2026
N1 er Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Í dag tókum við á móti viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026. Aðeins um 2,5% íslenskra fyrirtækja uppfylla skilyrðin en þau gera kröfu um jákvæða afkomu, sterka eiginfjárstöðu og góða lánshæfiseinkunn þrjú ár í röð.
Þessi viðurkenning er staðfesting á traustum og ábyrgum rekstri til margra ára. Hana eigum við fyrst og fremst okkar frábæra starfsfólki að þakka, fólkinu sem tekur á móti viðskiptavinum á stöðvum okkar um land allt á hverjum degi. En einnig viljum við þakka viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir viðskiptin og traustið.