Beint í efni
Frétt — 30. júní 2026

N1 mótið haldið í fertugasta sinn

Frá því að fyrsta mótið fór fram 1987 hafa tugþúsundir barna komið saman á Akureyri

N1 mótið verður haldið í fertugasta sinn á Akureyri dagana 1.-4. júlí. N1 mótið hefur fest sig í sessi sem eitt stærsta fótboltamót sumarsins og koma krakkar og fjölskyldur þeirra alls staðar af landinu til að keppa fyrir sín lið. Frá því að fyrsta mótið fór fram 1987 hafa tugþúsundir barna komið saman á Akureyri, keppt fyrir sitt félag, eignast vini og skapað minningar sem margir búa að alla ævi.

Fyrsta mótið fór fram árið 1987 þegar 15 lið frá átta félögum mættu til leiks. Síðan þá hefur mótið vaxið ár frá ári og undanfarin ár hafa um 200 lið frá um 40 félögum tekið þátt. Keppendur eru á bilinu 1.700–1.800 og á aðeins fjórum dögum eru leiknir hátt í eitt þúsund leikir. Mikillar spennu gætir fyrir mótið hjá þátttakendum og fjölskyldum, þá bæði fyrir samverunni, leikjum og ferðalaginu norður.

Leikirnir gleymast en tilfinningin situr eftir

Gunnar Helgi Kristinsson, 12 ára, mun keppa í annað skipti í ár fyrir hönd Gróttu. Honum finnst stemningin skemmtilegust og er „spenntastur fyrir að spila fótbolta með vinum sínum.“ Honum er minnisstætt þegar síðustu mínútur eins leiks Gróttu voru eftir, staðan var jöfn og einn liðsfélagi hans fékk horn og skoraði þannig að þeir unnu leikinn. Það er aldrei að vita nema þeir endurtaki leikinn aftur í ár og komi heim með enn fleiri sigra undir beltinu.

Fríður, móðir hans, segir að N1 mótið sé skemmtileg upplifun fyrir krakkana því „þeir fá tækifæri til að uppskera eftir veturinn og keppa.“ Þá er ekki síður gaman að fara sem foreldri því þau fá að fylgjast með og hitta fleiri foreldra sem standa þétt að baki sínum börnum.

Ekki þarf að vera í A-liðinu til að ná langt

Haukur Brink, leikmaður Stjörnunnar í Bestu deildinni, tók þátt í mótinu sem barn. Liðinu hans gekk ekki vel og tapaði öllum leikjunum sínum. Samt eru minningarnar frá ferðinni góðar.

„Ég fattaði hvað maður var heppinn að fá að fara í þessa ferð með vinum sínum,“ segir Haukur.

Hann segir mótið einnig hafa kennt sér að úrslitin séu ekki alltaf það mikilvægasta.

„Maður lærir að vinna og maður lærir líka að tapa. En það sem situr helst eftir er tíminn með vinunum. Ég myndi ráðleggja öllum sem eru að fara núna að njóta stundarinnar, því svona tækifæri koma ekki oft.“

Haukur var ekki í A-liði þegar hann tók þátt í mótinu en hefur síðan náð alla leið í efstu deild. Ljóst er að saga leikmanns á einum tímapunkti segir lítið um hvert leiðin getur legið.

Kynslóðir snúa aftur

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, tók þátt í Esso-mótinu, eins og það hét þá, með ÍR árin 1990 og 1991. Þá sendi félagið aðeins tvö lið til leiks.

Í dag snýr hann aftur á mótið sem foreldri.

„Það er alltaf jafn gaman að koma aftur,“ segir Halldór Benjamín.

Þannig hefur N1 mótið tengt saman kynslóðir. Börn sem eitt sinn komu norður með liðinu sínu snúa aftur mörgum árum síðar sem foreldrar, þjálfarar, sjálfboðaliðar eða stuðningsfólk.

Mótið stærra en fótboltinn

Í fjóra áratugi hefur mótið verið vettvangur þar sem börn fá að vaxa, bæði innan vallar og utan. Þau læra að vinna saman, treysta hvert öðru, sýna mótherjanum virðingu og standa aftur upp þegar ekki gengur sem skyldi.

„Við erum ótrúlega stolt af því að N1 mótið skuli nú vera haldið í fertugasta sinn,” segir Magnús Hafliðason, forstjóri N1.

„Í gegnum árin hafa þúsundir barna komið hingað til að spila fótbolta, en það sem þau taka með sér heim er oft miklu stærra en úrslitin sjálf. Þau eignast vini, verða hluti af liðsheild og safna minningum sem geta fylgt þeim alla ævi. “

Magnús segir mótið einnig sýna hversu mikilvægt öflugt íþróttastarf er fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið allt.

„Íþróttir skapa börnum öruggan vettvang, félagsskap og tækifæri til að þroskast. Þær kenna samvinnu, seiglu og virðingu. Þess vegna skiptir máli að atvinnulífið standi með íþrótta- og æskulýðsstarfi og hjálpi til við að skapa þessi tækifæri.“

Heill bær tekur þátt

Þúsundir og fjölskyldur þeirra koma til Akureyrar fyrstu helgina í júlí og eru áhrifin sýnileg um allan bæ. Veitingastaðir, verslanir, gististaðir og fjölbreyttir þjónustuaðilar finna fyrir auknum umsvifum og margir gestir nýta ferðina til að kynnast Akureyri og Norðurlandi betur.

N1 mótið er því einnig hluti af sumrinu á Akureyri, atvinnulífinu og samfélaginu sem tekur á móti gestum alls staðar að af landinu.

Að baki mótinu stendur jafnframt stór hópur starfsfólks, foreldra, þjálfara og sjálfboðaliða sem leggur ómælda vinnu í að gera upplifun þátttakenda sem besta.

„Það er ómögulegt að halda mót af þessari stærð án fólksins sem gefur tíma sinn, orkuna og hjartað í verkefnið,“ segir Magnús. „Þetta er sameiginlegt afrek allra sem hafa komið að mótinu í gegnum tíðina.“

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu N1 mótsins, n1motid.is