5. nóvember 2026
Ný hraðhleðslustöð í Vestmannaeyjum!

Við höfum opnað nýja hraðhleðslustöð við N1 Friðarhöfn í Vestmannaeyjum.
Stöðin er frá Kempower með 200 kW afl og tvo hleðslustaura. Hún er nú virk og komin í N1 appið. Enn á eftir að leggja lokahönd á frágang og merkingar á svæðinu, en hægt er að nýta stöðina strax.
Með þessari viðbót heldur hleðslunet N1 áfram að stækka og telur nú 62 hleðslutengla á 15 staðsetningum.
Sjá staðsetningar hraðhleðslustöðva hér