Beint í efni
Frétt — 12. júní 2025

Nýjar hleðslustöðvar rísa á landsbyggðinni

Við höldum áfram að styrkja hleðslunet N1 um land allt og nú eru nýjar og öflugri hraðhleðslustöðvar komnar í gagnið á þremur lykilstaðsetningum: Staðarskála, Hvolsvelli og Borgarnesi.

Nýjar hleðslustöðvar rísa í Staðarskála, Hvolsvelli og Borgarnesi

Þessar nýju stöðvar bjóða upp á betri áreiðanleika og einfaldari upplifun fyrir rafbílaeigendur á ferðinni. Við erum stolt af því að geta bætt þjónustuna á þessum fjölförnu stöðum. Við minnum á að hraðhleðslustöðvar N1 má finna víða um land, meðal annars á Ártúnshöfða, Egilsstöðum, Ísafirði og Vík og hægt er að hlaða í gegnum N1 appið.

Einnig eru Tesla hraðhleðslustöðvar aðgengilegar á stöðvum N1 á Blönduósi, í Keflavík, Fossvogi og Staðarskála. Þær eru opnar öllum bílategundum í gegnum Tesla appið.

Fyrir nánari upplýsingar og leiðbeiningar

N1 appið

N1 appið einfaldar lífið fyrir rafbílaeigendur. Nú er ekkert mál að finna næstu lausu hleðslustöð. Fylgstu með, stýrðu hleðslunni og borgaðu, allt beint úr símanum.