Oktoberfest í pylsubrauði!

Við kynnum glænýja pylsu í anda Oktoberfest sem færir þig beinustu leið á hátíðarsvæðið í München. Um er að ræða karrípylsu í bratwurst-stíl ásamt safaríku súrkáli og kryddaðri tómatsósu. Þú einfaldlega verður að smakka!
Fyrir þá sem vilja upplifa sannkallaða Oktoberfest stemningu fæst karrípylsan ásamt Stellu Artois 0% bjór á 899,- aðeins í takmarkaðan tíma.
"Markmiðið var að búa til eitthvað alveg nýtt og spennandi fyrir haustið og úr varð þessi hugmynd að karrípylsu (e. curry wurst). Í samstarfi við SS varð til hið fullkomna jafnvægi á milli þýsku karrípylsunni og okkar ástkæru íslensku pylsu. Hún er fersk, krydduð og passar ótrúlega vel með ísköldum Stella 0%" segir Steinunn Björk Eggertsdóttir, veitingastjóri N1.
*Fæst á öllum stöðvum að undanskildum N1 Akranesi, Flugvöllum, Húsavík, Ólafsvík og Reykjavíkurvegi sem og umboðsmönnum.