Pylsa í morgunmat?
Ný morgunverðarpylsa fyrir fólk á ferðinni, fáanleg í takmörkuðu magni á N1-stöðvum um land allt.

N1 kynnir nú nýjustu pyslu viðbótina: Egg- og beikonpylsuna. Pylsan er unnin í samstarfi við SS, en N1 og SS eiga að baki langt og farsælt samstarf um pylsur og aðrar vinsælar vörur á ferðinni.
Egg- og beikonpylsan er hugsuð fyrir þau sem vilja byrja daginn vel, grípa eitthvað gott á ferðinni eða fá sér próteinríkan hádegisverð með smá morgunverðarívafi.
Pylsan sameinar allt það besta úr morgunverðarhlaðborðinu í einni pylsu. Hún er með beikonvafinni ostapylsu, eggjasalati, beikonmulningi og sætri og sterkri sriracha-sósu.
„Við höfum verið að leika okkur meira með pylsuna sem vettvang fyrir nýjar hugmyndir og skemmtilegar bragðsamsetningar. Egg- og beikonpylsan er nákvæmlega þannig vara. Hún er aðeins öðruvísi, bragðmikil og hentar vel fyrir fólk sem vill eitthvað fljótlegt, gott og saðsamt á ferðinni,“
Pylsan kostar 899,- og fæst á stöðvum um land allt á meðan birgðir endast. Um er að ræða takmarkað magn og því er um að gera að hafa hraðar hendur fyrir þá sem vilja smakka þessa nýju morgunverðarpylsu.
*Fæst á öllum N1-stöðvum að undanskildum á Akranesi, Flugvöllum, Húsavík, Ólafsvík og Reykjavíkurvegi sem og umboðsmönnum.