13. ágúst 2026
Sigurvegari í vegabréfinu

Það borgar sig að safna stimplum á hringveginum! Erna María Hlynsdóttir, 11 ára, varð fyrir valinu þegar dregið var úr þúsundum þátttakenda í vegabréfaleik N1 nú á dögunum. Erna María og fjölskylda hennar hlutu stóra vinninginn í ár: Fjölskylduferð fyrir fjóra til Legoland í Billund.
Fjölskyldan þræddi landið vítt og breitt í sumar, naut veðurblíðunnar fyrir norðan og heimsótti stórfjölskylduna fyrir austan. Á hverjum viðkomustað hjá N1 bættust nýir stimplar í vegabréfið.
Magnús Hafliðason, forstjóri N1, afhenti þeim vinninginn og óskaði þeim góðrar ferðar á vit nýrra ævintýra í Danmörku.
Við viljum þakka öllum þeim sem hafa safnað stimplum í allt sumar með okkur!