Beint í efni
Frétt — 15. maí 2026

Gott að sjá þig, allan sólarhringinn!

Frá 15. maí verða N1 Ártúnshöfði, Hringbraut og Lækjargata opin allan sólarhringinn í sumar.

Frá og með aðfaranótt 15. maí verða stöðvar okkar að Ártúnshöfði, Hringbraut og Lækjargötu opin allan sólarhringinn.

Um er að ræða sumaropnun sem stendur til 20. ágúst og er ætlað að mæta aukinni þörf yfir sumarmánuðina þegar fleiri eru á ferðinni, bæði seint á kvöldin og um nætur.

„Við viljum vera til staðar þegar fólk þarf á okkur að halda. Sumarið er tími ferðalaga, lengri daga, vakta og óvæntra stoppa, bæði fyrir landsmenn og gesti sem sækja Ísland heim. Þess vegna ætlum við að prófa sólarhringsopnun á þessum stöðvum í sumar og sjá hvernig viðskiptavinir taka í það.“

segir Jón Viðar Stefánsson forstöðumaður einstaklingssviðs

Á stöðvunum verður hægt að nálgast eldsneyti eftir sem áður, mat, drykki, kaffi og aðrar nauðsynjar á öllum tímum sólarhringsins.

Næturopnunin verður á eftirfarandi stöðvum:

  • N1 Ártúnshöfða
  • N1 Hringbraut
  • N1 Lækjargötu

N1 mun fylgjast vel með reynslunni í sumar og meta framhaldið út frá notkun, viðbrögðum viðskiptavina og rekstri stöðvanna.