Stöðin mín heldur áfram
Þjónustan Stöðin mín hjá N1 verður framlengd út árið eftir miklar vinsældir í sumar. Þúsundir viðskiptavina hafa þegar nýtt sér þjónustuna sem tryggir lægsta verð N1 á „þeirri stöð sem hentar best“.

Fast verð á hraðhleðslu
Með haustinu fá rafbílaeigendur nýjan kost. Auk þess að geta valið Stöðina sína, sem tryggir þeim alltaf hagstæðasta verðið, bjóða nú valdar hraðhleðslustöðvar N1, þar á meðal í Borgarnesi og við Ártúnshöfða, öllum viðskiptavinum fast lágt verð.
„Þar tryggjum við að hleðslan sé ekki bara þægileg heldur líka hagstæð,“ útskýrir Magnús.
“Við fengum ótal áskoranir frá viðskiptavinum um að halda þessu áfram,“ segir Magnús Hafliðason, framkvæmdastjóri N1. „Stærsta nýjungin er þó sú að rafmagn verður nú hluti af þjónustunni. Það gleður okkur að gera Stöðina mína að raunverulegum valkosti fyrir alla – hvort sem um er að ræða bensín-, dísel- eða rafbíla.“

Punktar safnast alls staðar
Vildarkerfið heldur áfram að stækka. Nú safnast punktar ekki aðeins fyrir kaupum á eldsneyti og rafmagn á stöðvunum heldur einnig fyrir heimarafmagn. Þau sem kaupa rafmagn heim til sín í gegnum N1 fá 3% punkta af hverjum reikningi.
„Nú er þetta farið að tengja saman alla orkunotkun heimilisins,“ segir Magnús. „Hvort sem þú hleður heima eða á ferðinni, þú safnar punktum sem þú getur nýtt síðar.“

Ein vinsælasta nýjung sumarsins var möguleikinn á að opna dælu beint í N1 appinu. Þjónustan, sem rafbílaeigendur hafa notið um árabil, er nú í boði fyrir alla orkukosti.
Ferlið er einfalt: Viðskiptavinir keyra að dælu, opna N1 appið, velja dæluna og byrja að dæla og safna punktum – án þess að fara inn á stöðina eða nota plastkort. Allar færslur birtast sjálfkrafa í appinu og veita yfirlit yfir orkunotkun.
„Þetta sparar fólki tíma, sérstaklega á köldum dögum eða þegar börnin eru í bílnum,“ segir Magnús. „En þrátt fyrir þægindin viljum við alltaf sjá sem flesta kíkja inn í kaffi eða smá spjall.“
Stöðin mín
Hver er uppáhalds N1 stöðin þín? Veldu stöðina þína í N1 appinu til að fá lægsta verðið okkar á eldsneyti og hleðslu fyrir bílinn. Þú velur bara þá stöð sem hentar þér best, hvort sem hún er nálægt heimilinu, vinnunni eða á leiðinni í bústaðinn.
Þú getur valið hvaða N1 stöð sem þú vilt, fyrir utan þær stöðvar sem bjóða alltaf upp á lægsta verðið okkar. Ef þú vilt skipta um stöð þá geturðu gert það á 30 daga fresti.