Beint í efni
Frétt — 23. október 2026

Stóraukin bílaþjónusta N1 í Hafnarfirði

Með nýrri þjónustumiðstöð við Borgahellu 8 í Hafnarfirði eflum við þjónustuna við fólk og fyrirtæki á svæðinu.

Hér er pláss fyrir allt að 110 þúsund dekk

Með nýrri þjónustumiðstöð við Borgahellu 8 í Hafnarfirði eflum við þjónustuna við fólk og fyrirtæki. Þar verður fjölbreytt bílaþjónusta og betra aðgengi fyrir vörubíla og önnur stór tæki.

Við erum þegar byrjuð að taka á móti viðskiptavinum, en starfsemin fer af stað í áföngum. Á næstu vikum og mánuðum tökum við aðstöðuna smám saman í notkun og aukum þjónustuna jafnt og þétt.

Í rúmlega 8.500 fermetra húsnæðinu verður aðstaða fyrir dekkja- og smurþjónustu og smáviðgerðir, ásamt miðlægu dekkjahóteli fyrir höfuðborgarsvæðið. Þar verða einnig eldsneytisdælur og þvottaaðstaða fyrir fólksbíla, vörubíla og vinnuvélar.

Rúmbetri aðstaða fyrir litla og stóra bíla

Með nýju aðstöðunni munum við geta þjónustað allt að sex fólksbíla í einu, auk vinnutækja. Mun betra aðgengi fyrir stærri bíla er mikilvæg viðbót við þjónustu okkar á svæðinu og kemur til móts við þarfir þeirra sem sinna flutningum og öðrum verkefnum á stórum bílum og tækjum.

Á neðri hæð verður afgreiðsla og verslun þar sem þú getur beðið á meðan við sinnum bílnum þínum. Þegar starfsemin verður komin að fullu í gang er gert ráð fyrir að rúmlega tuttugu manns starfi á staðnum.

Pláss fyrir allt að 110.000 dekk

Nýja dekkjahótelið rúmar allt að 110.000 dekk og gerir okkur kleift að mæta vaxandi eftirspurn eftir dekkjageymslu.

Þegar dekkin þín koma til geymslu þvoum við þau og felgurnar í sérstakri þvottavél. Við myndum dekkin síðan og skráum ástand þeirra. Þú færð myndir og upplýsingar svo þú hafir góða yfirsýn og getir metið þörfina fyrir endurnýjun með góðum fyrirvara. Við ráðleggjum þér um næstu skref og sjáum einnig um förgun dekkja sem ekki er lengur hægt að nota.

Við finnum líka fyrir auknum áhuga húsfélaga sem vilja losa um pláss í sameiginlegum geymslum. Hvort sem dekkin taka pláss í bílskúrnum eða geymslunni heima getum við séð um þau og þú nýtt rýmið í annað.

Við hlökkum til að taka á móti þér á Borgahellu 8.

https://n1.is/is/stodvar/borgahella