Þetta er málið!
Frí áfylling á kaffi

Það er ekki nóg að fylla bílinn bara með eldsneyti, heldur er mikilvægt að huga að sjálfum sér líka. Kaffiþyrstir ferðalangar geta nú keypt fjölnotakaffimál á þjónustustöðvum okkar en með kaupum á bollanum fylgir ótakmarkað uppáhellt Costa kaffi um land allt.
Bollinn er hannaður með notagildi og umhverfissjónarmið í huga, enda dregur notkun fjölnota bollans verulega úr úrgangi.
Við hvetjum kaffiunnendur til að tryggja sér bollann sem fyrst, aðeins er um takmarkað magn að ræða.
„Kaffibollinn er fastur punktur í tilveru margra á ferðinni, hvort sem það er á leið í vinnuna, skutla og sækja eða að keyra langar vegalengdir,“
Spurningar og svör
Fyrir kaffiunnendur
Með kaupum á fjölnota bollanum tryggir þú þér frítt uppáhellt kaffi á öllum N1 stöðvum þegar þú mætir með bollann. Það sem þú þarft að gera er að fá starfsmann til þess að skanna strikamerki á bollanum.
Á öllum helstu N1-stöðvum um allt land
Tilboðið gildir út árið 2026
Bollinn kostar 4.990,- , innifalið í verðinu er frí áfylling á uppáheltu kaffi á öllum N1 stöðvum um land allt.