Tímabundin lækkun til bóta
Í sumar hafa íslensk heimili notið góðs af því að virðisaukaskattur á bensín og dísil var lækkaður tímabundið

Í sumar hafa íslensk heimili notið góðs af því að virðisaukaskattur á bensín og dísil var lækkaður tímabundið úr 24% í 11%. Breytingin tók gildi í maí og hefur komið sér vel á tímum þar sem óvissa á alþjóðlegum olíumörkuðum hefur enn á ný sýnt okkur hversu hratt aðstæður geta breyst.
Spenna og átök í kringum Persaflóa og Hormússund eru skýrt dæmi. Atburðir langt frá Íslandi geta á skömmum tíma haft áhrif á aðfangakeðjur, heimsmarkaðsverð og að lokum kostnað heimila og fyrirtækja hér heima. Tímabundin lækkun virðisaukaskatts hefur því verið kærkomið mótvægi við þessar sveiflur og hjálpað til við að halda aftur af kostnaði á tímum verðbólgu og óvissu.
Hvað gerist á morgun 1. september?
Á morgun, 1. september fellur tímabundin lækkun virðisaukaskatts úr gildi. Að óbreyttu hækkar skatthlutfallið þá aftur úr 11% í 24% og sú breyting mun hafa áhrif á verð við dælu. Það er því eðlilegt að spyrja hvort tímabært sé að láta þar staðar numið.
Að okkar mati er full ástæða til að meta stöðuna að nýju áður en fyrirkomulagið rennur út. Aðgerðin var sett á til að verja heimili og atvinnulíf fyrir óvenjulegri óvissu á alþjóðlegum orkumörkuðum. Sú óvissa er ekki horfin.
Okkar verkefni hjá N1 er hins vegar skýrt: að halda áfram að leita leiða til að gera ferðina einfaldari og hagkvæmari fyrir viðskiptavini okkar, hvar sem þeir eru staddir á landinu. Stundum þarf nefnilega ekki að aka lengra eftir betri kjörum. Þau geta einfaldlega verið í vasanum.
Góð kjör eiga ekki að ráðast af póstnúmeri
Hjá N1 höfum við samhliða þessu lagt áherslu á eitt: að viðskiptavinir okkar geti tryggt sér hagkvæm kjör óháð því hvar á landinu þeir eru. Með Stöðinni minni í N1 appinu geta viðskiptavinir valið sína stöð og fengið þar bestu kjör sem N1 býður hverju sinni. Það á jafnt við hvort stoppað er á Ártúnshöfða eða fyllt á bílinn á Drangsnesi.
Við trúum því að góð kjör ekki eiga að ráðast af póstnúmeri eða því hvort gott verð standi aðeins yfir ákveðnar vikur. Þess vegna höfum við í ágúst lagt sérstaka áherslu á að minna bæði nýja og trygga viðskiptavini á Stöðina mína og við sjáum að sífellt fleiri eru að átta sig á ávinningnum.
Þegar eldsneytisverð er borið saman getur munað nokkrum aurum eða krónu á lítra milli staða. Viðskiptavinur sem hefur valið Stöðina mína í N1 appinu getur verið með önnur og betri kjör en þau sem sjást á verðskiltinu við götuna. Það gera um það bil 62.500 viðskiptavinir sem eru virkir notendur á N1 appinu. Ofan á þessi kjör bætast við að viðskiptavinir safna N1 punktum eða krónum sem hægt er að nýta á ferðinni hvort sem það er í pylsu, hleðslu, eldsneyti eða dekkjaþjónustu.
Meira en bara dæla
Þegar allt er tekið saman stendur N1 að baki 173 staðsetningum og þjónustupunktum víða um land. Þar eru þjónustustöðvar og sjálfsafgreiðslustöðvar, en líka bátadælur, bílaþjónusta, flugþjónusta, einkadælur og þjónusta í samstarfi við umboðsmenn. Þetta er öðruvísi rekstur en einfaldur samanburður á einu verðskilti gefur til kynna.
Á bak við eina staðsetningu geta verið margar dælur, tankar, verslun, húsnæði og annar búnaður sem þarf að reka, þjónusta og viðhalda allt árið. Á sumum stöðum er umfangið mikið, á öðrum lítið. Markmið okkar er það sama, að þjónustan sé til staðar þegar á henni þarf að halda.
