Beint í efni
26. ágúst 2026

Við leitum að öflugum rekstraraðila á Vopnafirði

Tækifæri á Vopnafirði

Við leitum að öflugum rekstraraðila til að taka við þjónustustöðinni okkar á Vopnafirði og vera jafnframt umboðsmaður á svæðinu. Hér er tækifæri til að reka eigið fyrirtæki með sterkt vörumerki og gott bakland. Með rekstrinum fylgir þjónustustöð, veitingarekstur og vörubirgðir, en umfram allt tækifæri til að setja þitt mark á starfsemina og þróa hana áfram. Við leitum að duglegum einstaklingi eða samhentum aðilum sem kunna að láta hlutina gerast, hafa gaman af fólki og vilja byggja upp góðan rekstur á Vopnafirði.

Nánari upplýsingar veitir Ingólfur Þór Hlynsson, rekstrarstjóri, á ingolfurthor@n1.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2026.