Beint í efni
Frétt — 30. apríl 2026

Vörumiðlun stígur markvisst inn í orkuskiptin með N1

Vörumiðlun hefur hafið samstarf við N1 um næstu skref í orkuskiptum fyrirtækisins.

Á myndinni má sjá f.v. Björn Guðmundsson, forstöðumaður orkusviðs N1, Andri tæknistjóri N1, Högni umsjónarmaður hleðsluinnviða N1 og Ólafur Ingi Kristjánsson bílstjóri hjá Vörumiðlun

Vörumiðlun hefur hafið samstarf við N1 um næstu skref í orkuskiptum fyrirtækisins. Samstarfið felur annars vegar í sér ráðgjöf um þarfir og uppbyggingu innviða og hins vegar afhendingu á hraðhleðslulausn fyrir nýjan flota fyrirtækisins sem knúinn er rafmagni.

Með þessu tekur Vörumiðlun mikilvægt skref í átt að breyttum rekstri og undirbýr sig markvisst fyrir framtíðina þar sem aukin áhersla er lögð á hagkvæmari, ábyrgari og sjálfbærari orkulausnir. Fyrirtæki um allt land standa nú frammi fyrir sambærilegum áskorunum og tækifærum, þar sem orkuskipti snúast ekki aðeins um ný tæki eða ný farartæki heldur einnig um góða greiningu og rétta innviði.

Hjá N1 hefur verið lögð áhersla á að styðja fyrirtæki í þessum breytingum með heildstæðri þjónustu. Þar skiptir máli að geta mætt mismunandi þörfum, hvort sem um er að ræða ráðgjöf, val á búnaði, uppsetningu hleðslulausna eða áframhaldandi þjónustu þegar rekstur er kominn af stað.

„Það er afar ánægjulegt að fá að vinna með fyrirtækjum sem eru tilbúin að horfa fram á veginn og undirbúa reksturinn fyrir næstu ár, orkuskipti byrja ekki á búnaði heldur á samtali, greiningu og skýrri sýn á hvað hentar hverjum rekstri. Hlutverk okkar er að aðstoða fyrirtæki í að taka upplýstar ákvarðanir og byggja upp lausnir sem virka í raunverulegum rekstri.“

Björn Guðmundsson, forstöðumaður orkusviðs hjá N1

Samstarfið við Vörumiðlun er gott dæmi um hvernig fyrirtæki geta farið markvisst af stað og byggt upp innviði. Með hraðhleðslustöð frá N1 getur fyrirtækið nú knúið nýjan flota með endurnýjanlegum orkugjöfum og skapað sér betri forsendur til framtíðar.

„Við hjá Vörumiðlun höfum verið að undirbúa okkur fyrir næstu skref í rekstrinum og fyrir okkur skiptir máli að fá ráðgjöf og lausn sem tekur mið af okkar þörfum. Við vildum vinna með aðila sem þekkir umhverfið, skilur reksturinn og getur stutt okkur í gegnum ferlið. Samstarfið við N1 hefur reynst okkur vel og gefur okkur sterkan grunn fyrir áframhaldandi þróun.“

segir Siggi Doddi hjá Vörumiðlun

Hjá N1 er lögð áhersla á að vera fyrirtækjum traustur samstarfsaðili á þessari vegferð. Við bjóðum fyrirtækjum ráðgjöf, hleðslulausnir og fjölbreytta þjónustu sem styður við orkuskipti og hjálpar stjórnendum að fá skýrari sýn á næstu skref.

Fyrirtæki sem vilja kynna sér þjónustu N1 á sviði orkuskipta geta haft samband í gegnum hlada@n1.is.