VSK breyting

Þann 1. maí síðastliðinn tóku gildi tímabundnar breytingar á virðisaukaskatti á eldsneyti, sem lækkaði úr 24% í 11%. Breytingin mun standa yfir til og með 31. ágúst 2026.
Lækkunin tekur til eldsneytis, að metangasi undanskildu. Breytingin á ekki við um AdBlue, rúðuvökva eða rafhleðslu. VSK breytingin hefur þó ekki áhrif á aðra þætti verðmyndunar, s.s. rekstrarkostnað, heimsmarkaðsverð eða fjármagnskostnað og mun verð því halda áfram að fylgja þessum þáttum sem áður, en verð með 11% vsk.
Helstu spurningar
Breytingin tók gildi 1. maí og gildir til og með 31. ágúst 2026
Verðið lækkaði um 10,5% með þessari breytingu. Breytingin hefur þó ekki áhrif á aðra þætti verðmyndunar, s.s. rekstrarkostnað, heimsmarkaðsverð eða fjármagnskostnað og mun verð því halda áfram að fylgja þessum þáttum sem áður, en með 11% vsk.
Breytingin nær til alls eldsneytis fyrir utan metan. AdBlue og rúðuvökvi eru heldur ekki með.
Afslættir og punktar breytast ekki. 10kr. afsláttur fyrir breytingu er enn 10kr. afsláttur eftir breytingu.