Mannauður og menning
Við ráðum af metnaði, styðjum vöxt og byggjum menningu þar sem fólk fær að blómstra — og léttir enn einn daginn, saman.
Fjölbreytt störf fyrir fjölbreytta þjónustu
Hjá okkur er alltaf líf og fjör. Við erum til staðar á augnablikunum sem halda deginum gangandi, þegar þarf að stoppa á langferð, fylla á, laga, skola af, grípa eitthvað með og halda áfram. Við viljum skapa umhverfi þar sem er gott að staldra við, bæði fyrir fyrirtæki og nærsamfélag.
Þjónustan er fjölbreytt og dagarnir alls konar. Fólk treystir á okkur í dagsins amstri með ýmsa bílaþjónustu og allt þetta praktíska sem þarf að græja í leiðinni. Verkefnin eru mismunandi frá degi til dags og það er alltaf eitthvað í gangi.

Virðing, traust og skýr samskipti
Menningin okkar endurspeglast best í venjulegum degi, hvernig við tökum á móti fólki, vinnum saman og leysum hlutina þegar það er mikið að gera. Við viljum að starfsfólkið okkar upplifi öryggi til að láta í sér heyra og fái jöfn tækifæri sem skilar líka öflugri liðsheild. Við bregðumst strax við ef eitthvað kemur upp á og leggjum áherslu á að hlúa vel að bæði aðstöðunni og andrúmsloftinu á vinnustaðnum.

Laus störf
Hér finnurðu laus störf um allt land og í ólíkum hlutverkum. Við leitum að fólki sem vill vinna vel með öðrum, taka ábyrgð og vera hluti af góðu teymi.

Viltu vita meira?
Hér til hliðar má finna spurningar og svör.
Allar umsóknir fara í gegnum ráðningarvefinn nema annað sé tekið fram.
Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir um störf sem trúnaðarmál.
Umsækjendur fá staðfestingu á móttöku umsóknar í tölvupósti.
Öllum umsóknum um auglýst störf er svarað þegar búið er að ráða í starfið. Umsóknarferlið tekur að jafnaði 4-8 vikur frá því að laust starf er auglýst.
Umsóknir eru gildar í 6 mánuði og geymdar samkvæmt lögum um Þjóðskjalasafn Íslands.
Aðeins mannauðsráðgjafar og stjórnandi þess sviðs sem auglýst starf tilheyrir hafa aðgang að þeim umsóknum sem berast.
Allt starfsfólk sem hefur störf hjá okkur þarf að standast bakgrunnsskoðun Ríkislögreglustjóra.
Við leitumst við að hafa vinnutímann sveigjanlegan þar sem það er hægt að koma því við. Jafnframt leggjum við áherslu á að það sé jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Starfsfólk setur fram óskir um vaktir eða daga sem þeim hentar að vinna innan tímabilsins, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, t.d. varðandi hvíldartíma. Þegar óskir starfsfólks liggja fyrir eru óskir heildarinnar skoðaðar út frá mönnunarþörf hverju sinni og gerðar breytingar ef þurfa þykir. Markmið okkar er að mæta óskum starfsfólks að mestu leyti og að lágmarki 50%.
2-2-3 Tveggja vikna vaktarúlla þar sem unnið er ýmist tvo eða þrjá daga í senn og frídagar eru jafnmargir á móti. Vaktirnar eru 12 tímar en vinnutími fer eftir deildum. Vaktakerfið er sett upp í tveggja vikna tímabil sem raðast til dæmis svona: Frí frá föstudegi til sunnudags, vinna mánudag og þriðjudag, frí miðvikudag og fimmtudag, vinna frá föstudegi til sunnudags, frí mánudag og þriðjudag, vinna miðvikudag og fimmtudag.
5-5-4 Vaktarúlla þar sem skipst er á að vinna fimm eða fjóra daga í senn. Vaktirnar eru 12 tímar en vinnutími fer eftir deildum. Kerfinu er stillt upp þannig að starfsfólk byrjar á að vinna í fimm daga, er svo í fríi í fimm daga og vinnur síðan í fjóra daga. Því næst er frí í fimm daga, vinna í fimm daga og frí í fjóra daga.
Ráðningar
Við leggjum okkur ávallt fram við að ráða til starfa hæft fólk sem hefur metnað til að ná árangri í starfi. Við stöndum faglega að ráðningum í samræmi við jafnréttisstefnu og hæfnikröfur starfa
Við ráðum einstaklinga með fjölbreytta hæfni, viðhorf og þekkingu.
Starfsþróun og fræðsla
Áhersla er á að upplifun starfsmanna sé góð frá upphafi og mikil áhersla lögð á góða móttöku nýliða og nýliðafræðslu.
Félagið rekur sinn eigin skóla og er kennsla bæði í formi rafrænnar kennslu og staðkennslu.
Við uppbyggingu öflugrar liðsheildar leggjum við áherslu á fræðslu og starfsþróun.
Starfsfólk er hvatt til að efla sig og vaxa í starfi með því að taka virkan þátt í fræðslustarfi en starfsfólki stendur til boða fjölbreytt úrval námskeiða, rafræn og staðbundin.
Starfsfólk er hvatt til að taka frumkvæði og ábyrgð á eigin þekkingu og færni.
Jafnrétti
Jafnrétti er mikilvægt að hafa í forgrunni í öllum ákvörðunum sem snúa að mannauði og störfum við í samræmi við jafnréttisstefnu.
Jafnlaunastefna tryggir að fyllsta jafnréttis sé gætt á meðal starfsmanna þar sem stuðlað er að jafnri stöðu og virðingu allra. Hver starfsmaður er metinn að eigin verðleikum og allir hafa jöfn tækifæri í samræmi við lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði.
Upplýsingagjöf
Áhersla er lögð á markvissa upplýsingagjöf til starfsfólks og að upplýsingum sé miðlað í rétta átt á hverjum tíma.
Aðgengi að upplýsingum er mikilvægt svo starfsfólk geti sinnt starfi sínu vel og náð árangri.
Starfsumhverfi
Áhersla er lögð á að skapa starfsfólki gott og hvetjandi starfsumhverfi þar sem þarfir starfsfólks og viðskiptavina fara saman.
Mikilvægt er að vinnuaðstaða og tækjabúnaður sé eins og best er á kosið og aðstæður leyfa.
Við sköpum starfsfólki starfsumhverfi í samræmi við jafnréttisstefnu þar sem öllum getur liðið vel við dagleg störf og einelti, kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi er ekki liðið.
Umhverfismál og samfélagsleg ábyrgð er virkur grunnur hjá okkur með það að leiðarljósi að gera sífellt betur og vinna sífellt að framförum.
Menning
Heilsa starfsmanna er lykilþáttur í velgengni og í samstarfi við Heilsuvernd er sá þáttur lagður að grundvelli með áherslu er á heilsutengdar forvarnir.
Fjölbreytt og skemmtilegt starfsfólk gerir vinnustaðinn eftirsóknarverðan og skemmtilegan. Boðið er upp á fjölda viðburða árlega sem eru ýmist skipulagðir af starfsmannafélagi, starfsfólkinu eða vinnustaðnum.
Starfsandi og líðan starfsfólks er mikilvægur þáttur í starfseminni og vinnustaðagreining er lögð fyrir árlega þar sem mæld er heildaránægja og gripið til aðgerða ef þörf er á.